Hreint vatn er okkar fag
Við sjáum um viðhald og þrif á baðstöðum
Vatn og tæki ehf sérhæfir sig í rekstrarlausnum fyrir náttúrulaugar, baðlón, sundlaugar og aðra baðstaði. Við leggjum áherslu öruggt og vel meðhöndlað vatn.
Með víðtæka reynslu af krefjandi verkefnum vinnum við markvisst að öryggi í rekstri og finnum hagkvæmar lausnir, með upplifun gesta að leiðarljósi. Við veitum sérhæfða ráðgjöf við val á hreinsibúnaði, vatnsmeðferð og öllu öðru sem snýr að daglegum rekstri lauga.
Þrifaþjónusta
Við bjóðum hreinsiþjónustu fyrir allar laugar og potta, hvort sem um ræðir náttúrulaugar eða hefðbunda sundlaugar.
Við bjóðum upp á stök þrif, sérþrif, tæmingar eða heildarlausnir til lengri tíma.
Einnig bjóðum við hreinsun og viðhald á nærumhverfi lauga.
Viðhald og rekstur
Vatn og tæki ehf setur upp hreinsikerfi og sinnir fyrirbyggjandi viðhaldi. Við veitum einnig ráðgjöf við endurbætur og nýbyggingar.
Með viðeigandi búnaði og réttum aðferðum er hægt að hámarka hagkvæmni, auka rekstraröryggi og ná markmiðum um sjálfbærni.
Tækjabúnaður og verkstæðið
Náttúrulaugar og baðlón gera aðrar kröfur til hreinsunar og viðhalds en hefðbundnar sundlaugar. Til að tryggja hreinlæti, vatnsgæði og öruggan rekstur þarf sérhæfðan búnað og réttar aðferðir.
Við bjóðum upp á lausnir sem byggja á öflugum hreinsikerfum, sérhæfðum tækjum og vandaðri efnavöru. Með fjölbreyttan búnað, reynslu og eigin smíði á sérlausnum finnum við hagkvæmustu og áreiðanlegustu lausnina fyrir laugina þína.